Nr 72
Tegund: Ligna
Gerð: Díatónísk harmonika, 2 raða, 21 nóta, 8 bassa
Nótur: 21/8
Framleiðsluland: ekki vitað
Litur: Ljósbrún
Framleiðsluár: 1948
Lýsing: Þarfnast viðgerðar
Saga: Faðir gefandans, Sveinbjörn Rögnvaldsson frá Uppsölum í Seyðisfirði, f. 15.sept.1886, eignaðist harmonikuna notaða um 1949‐50, en þá var hann fluttur til Bolungarvíkur. Sveinbjörn var þekktur harmonikuleikari í byggðum við Ísafjarðardjúp. Hann lést árið 1974. Fyrsti eigandi harmonikunnar var Ásgeir G. Sigurðsson, bílstjóri og hljóðfæraleikari á Ísafirði, en hann keypti harmonikuna í Bókaverslun Jónasar Tómassonar hér á Ísafirði 1949.