Það hefur margt á daganna drifið hér á safninu. Aðsókn hefur verið með besta móti miðað við svartsýnustu spár eftir COVID faraldurinn sem gekk yfir. Landsmenn hafa verið duglegir að kíkja við á safninu og er það ánægjulegt sem og traffíkin hér fyrir vestan.
Hér á safninu höldum við áfram að tengjast umheiminum í gegnum samfélagsmiðla en safnið er komið á miðlilinn Instagram - https://www.instagram.com/nedstimuseum/ og vonumst til að #nedstimuseum færi okkur skemmtileg myndræn augnablik frá heimsóknum gesta.
Úr flýttri auka úthlutun úr safnasjóði árið 2020 til eflingar á faglegu starfi safna hlaut Byggðasafn Vestfjarða styrk að upphæð 1.200.000 til skráningar, varðveislu og fræðslu gripa í Turnhúsi. Þetta er kærkomin búbót í það starf sem fer hér fram og styrkir það til muna.
Afhendingar á munum og minjum hvaðanæva af Vestfjörðum hafa verið þónokkrar og færum við því fólki bestu þakkir. Saumavélar, koffort, forláta berjatínur, föt, flöskur svo eitthvað sé nefnt. Eitt af því sem barst til safnsins ásamt góðri heimsókn var málverk af vélbátnum Ver ÍS 120. Báturinn var smíðaður á Akranesi árið 1929. Sumarið 1949 var báturinn seldur vestur á Ísafjörð, kaupandinn Bergmann Þormóðsson. Báturinn var í útgerð í um 45 ár, og allan þann tíma áttu sér stað aðeins ein eigendaskipti. Hann hét Ver allan tímann en bar einkennisstafina MB, AK og ÍS. Jón Ásgeir Jónsson afhenti safninu málverkið af VER ÍS 120 til varðveislu en Jón Ásgeir og systkini hans gáfu málverkið á sínum tíma til minningar um Jón Egilsson, föður sinn, skipstjóra og Bergmann Þormóðsson.
Heimildir: Íslensk skip, skipamyndir.com
Ljósmyndir: Snævar Sölvi og Pálmi Jóhannesson