Ný Facebook síða safnsins hefur litið dagsins ljós. Aðgangurinn að fyrri síðunni glataðist sem er amalegt í ljósi þeirra mynda og upplýsinga sem þar eru inni en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir á endurheimt reyndist það eina í stöðunni að stofna nýja síðu. Facebook síða Byggðasafns Vestfjarða.
Alþjóðlegi safnadagurinn er þann 18. maí n.k. Að þessu sinni eru söfn hvött til þess að vera virk á samfélagsmiðlum, í hinum stafræna heimi og vekja þannig athygli á starfi safna samfélaginu til góðs. Markmiðið með alþjóðlega safnadeginum er að kynna og efla safnastarf í heiminum. Þemað í ár er “Söfn eru jöfn: Fjölbreytni og þátttaka allra 2020”
Byggðasafnið mun vera sýnilegt á nýrri Facebook síðu og miðla safnkosti sínum í tilefni dagsins. #safnadagurinn, #MuseumDay, #IMD2020, #Museums4Equality á Instagram, Twitter og Facebook.
Á heimasíðu FÍSOS stendur:
Söfn um heim allan munu fagna Alþjóðlega safnadeginum þann 18. maí 2020 og dagana í kring með því að nota stafrænar lausnir vegna Covid19. Þátttaka í Alþjóðlega safnadeginum fer vaxandi meðal safna um heim allan. Árið 2019 tóku yfir 37.000 söfn þátt í atburðinum í 158 löndum.
Ýtum undir fjölbreytni og þátttöku allra í menningarstofnunum samfélagsins
Höfuðatriði samfélagslegs gildis safna er möguleikinn á því að bjóða fólki af ólíkum uppruna og með ólíkan bakgrunn að upplifa einstaka hluti. Söfn eru í senn virtar stofnanir og breytingaafl og nú er rétti tíminn til að þau sýni fram á mikilvægi sitt með því að taka þátt í pólitískum, samfélagslegum og menningarlegum veruleika nútíma samfélags með uppbyggilegum hætti.
Þær áskoranir sem þátttaka fjölbreytts hóps hefur í för með sér og þeir erfiðleikar sem fylgja því að fjalla um flókin samfélagsleg málefni í umhverfi þar sem klofningur eykst stöðugt eru ekki bundin við söfn og menningarstofnanir eingöngu en skipta þessar stofnanir þó miklu máli þar sem þær eru í hávegum hafðar í samfélaginu.
Sívaxandi væntingar um samfélagslegar breytingar hafa drifið áfram umræðuna um möguleika safna á að vera jákvætt samfélagsafl með því að halda sýningar, ráðstefnur, gjörninga og standa fyrir fræðsludagskrám og framtaksverkefnum. Hins vegar er mikið óunnið í þá átt að sigrast á meðvituðum og ómeðvituðum breytum sem geta skapað ójöfnuð innan safna, og á milli safna og gesta þeirra.
Slíkur ójöfnuður getur tekið til margra atriða; til dæmis þjóðernis, kyns, kynhneigðar og kynvitundar, félagslegs bakgrunns, menntunarstigs, líkamlegrar getu, stjórnmálaskoðana og trúarbragða.
Undir yfirskriftinni „Söfn eru jöfn: Fjölbreytni og þátttaka allra“, leitast Alþjóðlegi safnadagurinn 2020 við að verða sameinandi afl sem í senn fagnar þeim ólíku sjónarmiðum sem finna má í samfélögum og starfsliði safna, og leitast við að koma auga á og sigrast á hvers konar slagsíðu í því sem sýnt er og þeim sögum sem þar eru sagðar.