Hrafnseyri við Arnarfjörð er fæðingarstaður og æskuheimili Jóns Sigurðssonar. Á 200 ára afmælisári Jóns var sett þar upp ný sýning helguð lífi og starfi Jóns Sigurðssonar. Gamli bærinn sem fjölskylda Jóns bjó í hefur verið endurgerður og á sumrin er þar hægt að kaupa veitingar.
Nánari upplýsingar: www.hrafnseyri.is