Bátar í varðveislu Byggðasafns Vestfjarða

Ölver

með öllum farviðum er safngripur nr, 1 í aðfangabók Byggðasafns Vestfjarða.  Sexæringurin er smíðaður í Bolungarvík árið 1941 af Jóhanni Bjarnasyni, bátasmið og fyrrum árabátaformanni. Það var að frumkvæði Bárðar G. Tómassonar skipaverkfræðings. 23. júlí árið 1941 var Ölver afhentur Byggða- og sjóminjasafni Ísfirðinga, eins og safnið hét þá, til eignar og varðveislu. Núverandi uppsátur Ölvers er við verbúðina Ósvör í Bolungarvík til sýnis á sumrin.

Upp